
Uppruni og aðdragandi
Með aukinni áherslu á nútímalegar, tæknistuddar og skilvirkari kennsluaðferðir hefur skapast aukin þörf fyrir verklegt kennslurými í heilbrigðisvísindum. Á sama tíma hefur nemendum í heilbrigðisvísindum fjölgað umtalsvert, sem hefur valdið því að snúið hefur reynst að koma klínískri kennslu fyrir inn á heilbrigðisstofunum. Þá hefur umfang færni- og hermikennslu sem liður í starfsþróun og símenntum heilbrigðisstarfsfólks aukist mikið. Af þessum ástæðum hefur þörfin fyrir aukið kennslurými aukist verulega.
Undirbúningsvinna fyrir HermÍs hófst á vormánuðum 2023. Ráðist var í framkvæmdir við að breyta 2. hæð í Eirbergi sumarið 2023. Uppbygging á HermÍs verkefninu er flókin og margþætt. Huga þurfti að ólíkum þörfum væntanlegra notenda, þróun kennslurýmisins, nýjungum í kennslubúnaði og fjölda/hæfi kennara.
Kennslurýmið í HermÍs er hannað með margþætta verklega kennslu í huga. Hægt er breyta uppsetningu á rýminu og aðlaga að ólíkum kennsluþörfum sérgreina í heilbrigðisvísindum. Í setrinu er hugsað til framtíðar og setrið hannað með nýstárlegar kennsluaðferðir í huga, eins og sýndarveruleika og skjáhermingu. HermÍs er hugsað fyrir alla heilbrigðisvísindanemendur og allt heilbrigðisstarfsfólk.
Kennsla í HermÍs hófst formlega í janúar 2024.